21. desember 2014

Breyting á stjórnun skólans

Breyting á stjórnun skólans
Frá og með 01.01.2015 mun ég undirrituð fara í fæðingarorlof í eitt ár. Á meðan leyfið stendur yfir mun Jóhanna Sævarsdóttir aðstoðarskólastjóri leysa mig af sem skólastjóri og Jón Haukur Hafsteinsson mun taka við sem aðstoðarskólastjóri.
 
Bendi ég ykkur á að hafa samband við þau annað hvort í síma 420-3050 eða senda þeim tölvupóst á johanna.saevarsdottir@haaleitissskoli.is og jon.h.hafsteinsson@haaleitisskoli.is.
 
Vil ég nota tækifærið og þakka ykkur kæru foreldrar og nemendur fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og óska ykkur gleðilegra jóla.
 
Með bestu kveðju,
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Skólastjóri Háaleitisskóla
  • FFGÍR
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær