9. júní 2020

Hvatningarverðlaun 2020

Hvatningarverðlaun 2020

Réttindaskóli UNICEF í Háaleitisskóla hlaut í gær hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar 2020.  Verkefnið "Lærum saman í gegnum orðin" sem unnið var í Háaleitisskóla fékk einnig viðurkenningu. Verðlaunað er fyrir störf eða verkefni sem þykja skara fram úr og eru öðrum til eftirbreytni. Háaleitisskóli þakkar kærlega fyrir þessar viðurkenningar.

18 verkefni voru tilnefnd og fjögur hlutu viðurkenningu og eitt verkefni hvatningarverðlaunin.

 

Um Réttindaskólann.

Í haust hóf Háaleitisskóli þátttöku í tilraunaverkefni sem miðar að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í allt skóla- og frístundastarf.  Verkefnið kallast Réttindaskóli og Réttindafrístund UNICEF og er alþjóðlegt vottunarverkefni sem hefur síðastliðinn áratug verið innleitt með góðum árangri í þúsundum skóla um allan heim.  Skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar sem taka þátt í verkefninu geta öðlast viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Réttindaskólar og Réttindafrístund.

Að vera Réttindaskóli UNICEF felur í sér að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er lagður til grundvallar í öllu skólastarfi. Markmiðið er að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, efla jákvæð samskipti, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins. Með verkefninu er einnig skapaður rammi utan um þau ólíku sjónarhorn, stefnur og gildi sem skólum er ætlað að vinna eftir, svo sem aðalnámskrá grunnskóla, grunnskólalög og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna – sem var lögfestur hér á landi árið 2013.

Rannsóknir sem gerðar hafa verið í meira en 1.600 Réttindaskólum í Bretlandi hafa sýnt afar jákvæðar niðurstöður. Einelti og ofbeldi í skólunum minnkaði, börnin sýndu aukið umburðarlyndi og skilning á fjölbreytileika, líðan barna batnaði og starfsánægja fullorðinna jókst umtalsvert.  Og það sem er líka mikilvægt, umræða um réttindi barna og Barnasáttmálann átti sér stað inni á heimilum barnanna.

  • FFGÍR
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær