5. mars 2020

Röskun á skólastarfi vegna fyrirhugaðs verkfalls

Röskun á skólastarfi vegna fyrirhugaðs verkfalls

Vegna boðaðs verkfalls aðildarfélaga BSRB mun stór hópur félagsmanna BSRB leggja niður störf mánudaginn 9. mars og þriðjudaginn 10. mars n.k. Ef ekki verður búið að semja fyrir þann tíma mun röskun verða á skólastarfi þar sem stuðningsfulltrúar og starfsmenn skóla aðrir en kennarar, stjórnendur og félagsmenn BHM og VSFK leggja niður störf.
Til að gæta fyllsta öryggis verður skólastarfi Háaleitisskóla háttað þannig þessa daga ef til verkfalls kemur að:
1. - 4. bekkur mætir í skólann frá 8:15 - 9:35
5. - 7. bekkur mætir í skólann frá 9:55 - 11:15
8. - 10. bekkur mætir í skólann frá 8:15 - 11:55
Samræmt próf í íslensku í 9. bekk er á áætlun 10. mars. Fyrirlögnin á ekki að raskast en ef breytingar verða munum við láta vita.
Hádegisverður verður ekki framreiddur þessa daga og frístundaheimilið verður lokað.
Íþróttakennsla verður ekki þessa daga þar sem verkfall á við starfsmenn íþróttahúss. Því þurfa nemendur ekki að koma með íþróttaföt. Íþróttakennarar munu sinna kennslu með öðrum hætti en venjulega.
Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að virða tímasetningar og ná í börnin sín á tilsettum tíma ef þau ganga ekki sjálf heim.
Vinsamlegast notið Mentor til að tilkynna veikindi/leyfi eða sendið tölvupóst á haaleitisskoli@haaleitisskoli.is.
Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með fréttum sunnudaginn 8. mars til að geta brugðist við á mánudagsmorgun ef til verkfalls kemur.
Athugið að í skólum Reykjanesbæjar eru mismunandi aðstæður og skólar bregðast við á mismunandi hátt út frá stöðunni á hverjum stað.

Með kveðju,
Skólastjórn


Dear parents and guardians
Due to a planned strike on behalf of BSRB, a large group of our staff will not attend work on Monday March 9th and Tuesday March 10th if a settlement will not be reached by then.

For that reason schooling in Háaleitisskóli will be as following for those days:
1st - 4th grades will attend from 08:15 - 09:35
5th - 7th grades will attend from 09:55 - 11:55
8th - 10th grades will attend from 8:15 - 11:55
9th grade national examination days will stay on schedule until further notice.
No lunch will be served at school those days and Frístund will also be closed.
The gym and pool will be closed, students will remain in their classroom and receive written lessons instead.
Please contact us through Mentor or email (haaleitisskoli@haaleitisskoli.is).
All students will be sent home at the end of their school day, unless they are picked up on time.
We recommend that parents follow news on Sunday March 8th for more information on the strike.
Note that circumstances differ in Reykjanesbær schools so schedules might not be the same for all students of Reykjanesbær.
 

  • FFGÍR
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær