16. mars 2020

Tilkynning frá Háaleitisskóla

Tilkynning frá Háaleitisskóla

Nú er ljóst að skólastarf mun raskast verulega í ljósi takmarkana sem sóttvarnalæknir hefur sett.

Nemendur munu mæta á mismunandi tímum á morgnana og fara heim á mismunandi tíma. Frístundaheimili verður í boði fyrir 1. - 3. bekk til kl. 15:45.

Matur verður afgreiddur inn í stofur og verður boðið upp á mat fyrir þá sem eru í áskrift hjá Skólamat.

Í dag fá allir árgangar póst frá umsjónarkennara með fyrirmælum um hvernig næstu dögum verður háttað og tímasetningum. Mikilvægt er að nemendur komi inn um þá innganga og á þeim tíma sem þeim er ætlað.

Vinsamlega farið vel yfir þær leiðbeiningar sem sendar verða og ræðið við nemendur. Skólanum hefur verið skipt upp í sóttvarnarými og nemendur verða að halda sig innan þess og svo innan hvers rýmis í sinni stofu.

Á meðan að á þessum takmörkunum stendur eru foreldrar og aðrir beðnir um að koma ekki inn í skólann heldur senda frekar tölvupóst á viðkomandi starfsmann eða hringja.

Með von um gott samstarf
Skólastjórnendur Háaleitisskóla

____________________

Dear parents / guardians


It is now clear that schooling will be significantly disrupted in light of the limitations set by the Icelandic department of Heath and epidemilogy.

Students will show up at different times in the morning and go home at different times. Frístund will be available for first-third grade, until 15:45.

Food will be consumed in the classroom and those who are subscribed to Skólamatur will be offered a food.

Today, all grades receive mail from their teachers with instructions on how the next days will be and all timings. It is important that students come in at the entrance and at the time they are intended.

Please carefully review the instructions that will be sent and discuss with your children. The school has been divided into quarantine rooms and students must stay within it and then within their group in the classroom.

During these restrictions, parents and others are asked not to enter the school but rather send an email to the staff or call.

With the hope of good cooperation,
School administrators of Háaleitisskóla

  • FFGÍR
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær