22. ágúst 2014

Tilkynning frá Skólamat

Tilkynning frá Skólamat

Skólamatur veturinn 2014 - 2015

Skólamatur ehf. mun sjá um hádegismáltíðir í Háaleitisskóla í vetur eins og undanfarin ár.

Í upphafi vetrar er gott að fara yfir nokkur atriði svo allt gangi nú sem best.

 

Skráning í skólamatinn hefst föstudaginn 22. ágúst, á heimasíðunni www.skolamatur.is

Þar má einnig finna nánari upplýsingar um skólamatinn.  Hægt að senda fyrirspurnir á skolamatur@skolamatur.is

 

Áskrift frá fyrra vetri endurnýjast ekki sjálfkrafa og því þarf að endurnýja allar mataráskriftir nú í skólabyrjun.

 

Afgreiðsla skólamáltíða hefst svo mánudaginn 25. ágúst og hefst þá fyrsta áskriftartímabilið.

Næsta áskriftatímabil er frá 1. október til 1. nóvember.  Eftir það er hvert áskriftartímabil frá 1. til 1. hvers mánaðar.

 

Hver máltíð kostar 298 kr.  Einungis er greitt fyrir mat þá daga sem skóli er skv. skóladagatali.  Mataráskriftir eru seldar í áskriftatímabilum.   

Hægt er að greiða með færslu af greiðslukorti, greiðslukröfu í heimabanka/netbanka, eða fá sendan greiðsluseðil.  Gjalddagi er í upphafi hvers áskriftatímabils.

 

 

Maturinn sem boðið er uppá er eldaður í Háaleitisskóla eins og undanfarin ár.

 

Forráðamenn nemenda sem af heilsufarsástæðum þurfa að fá sérstaklega útbúin mat, t.d. vegna ofnæmis eða sjúkdóma geta óskað eftir sérfæði, við áskriftaumsókn.  Skila þarf inn læknisvottorði en vottorð frá fyrra ári gilda.

 

Lykillinn að góðri þjónustu eru góð samskipti og við hvetjum því foreldra og nemendur að koma til okkar ábendingum og athugasemdum um skólamatinn til okkar.  Þannig getum við unnið saman að því að í skólanum sé boði upp á hollan og góðan mat.

 

 

 

Með von um gott samstarf í vetur

Starfsfólk Skólamatar ehf.

  • FFGÍR
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær