10. nóvember 2014

Bókakynning

Bókakynning

Hilmar Örn Óskarsson, rithöfundur kom í heimsókn og las valdan kafla upp úr nýjustu bók sinni um Kamillu Vindmyllu og svikamyllurnar fyrir nemendur í 2. – 6. bekk.  Nemendur hlustuðu af athygli og höfðu gaman af þessari heimsókn. Í lokin gafst nemendum tækifæri á að spyrja rithöfundinn spurninga og voru þær af öllum toga. Hilmar Örn var ánægður með heimsókn sína í Háaleitisskóla en þess má einnig geta að hann á einmitt börn sem ganga í skólann.

  • FFGÍR
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær