10. janúar 2018

Samkeppni um söngtexta fyrir skólasöng Háaleitisskóla

Samkeppni um söngtexta fyrir skólasöng Háaleitisskóla

Háaleitisskóli efnir til samkeppni um söngtexta fyrir skólasöng Háaleitisskóla í tilefni af 10 ára afmæli skólans. Lagið verður frumflutt á afmælishátíð skólans þann 23.febrúar 2018.

Allir í skólasamfélagi Háaleitisskóla geta tekið þátt, þ.e nemendur, foreldrar og forráðamenn og starfsfólk.

Söngtextinn þarf að einhverjum hluta að passa einkennisorðum skólans.

Einkennisorð skólans eru: MENNTUN og MANNRÆKT, einnig leggjum við áherslu á einkunnarorð PBS stefnu skólans sem eru ÁBYRGÐ, SAMVINNA OG TILLITSSEMI sem eru höfð að leiðarljósi í öllu skólastarfinu.


Skilafrestur er til 24.janúar 2017.

Tillögum skal skilað rafrænt á póstfangið: anna.s.gudmundsdottir@ haaleitisskoli.is  eða útprentað á blaði í sértilgerðan kassa sem mun vera hjá Guðný ritara.

 
Veitt verða verðlaun að upphæð 30 þúsund krónur fyrir þann texta sem verður valið.

Í dómnefnd verða 5 aðilar; fulltrúi starfsmanna, fulltrúi nemenda og fulltrúi foreldra nemenda í Háaleitisskóla, skólastjóri og tónlistarkennari.

Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Háaleitisskóla, Anna Sigríður Guðmundsdóttir, netfang:
anna.s.gudmundsdottir@ haaleitisskoli.is
, sími: 4203050

Tillögum skal skilað til skólastjóra Háaleitisskóla.

Heimilisfang:

Lindabraut 624

262 Reykjanesbær

 

Kær kveðja

Anna Sigríður Guðmundsdóttir

skólastjóri Háaleitisskóla

  • FFGÍR
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær