29. maí 2017

Samningur við Björgunarsveitina Suðurnes undirritaður

Samningur við Björgunarsveitina Suðurnes undirritaður

Í dag var undirritaður samningur um samstarf við Björgunarsveitina Suðurnes. Næsta skólaár verður nemendum í 9. bekk boðið upp á valgreinina Unglingadeildin Klettur.  Nemendur sækja þá þjálfun hjá unglingadeildinni og fá það metið sem val í skólanum.  

Markmiðið með samvinnunni eru meðal annars að:

  • efla tengsl skóla og Björgunarsveitarinnar
  • meta til náms miklar æfingar og nám nemenda varðandi björgunarmál
  • hvetja nemendur til þátttöku í starfi Björgunarsveitarinnar
  • auka fjölbreytini valgreina
  • unglingarnir geri sér grein fyrir mikilvægi góðrar ástundunar
  • efla prúðmannlega framkomu og drenglyndi í leik og starfi

Við hlökkum mikið til samstarfsins.

  • FFGÍR
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær