Fréttir
Glæsileg stemning á Litlu upplestrarkeppninni
Litla upplestrarkeppnin fór fram í morgun og heppnaðist einstaklega vel. Undirbúningurinn var vandaður, skreytingarnar flottar, sviðið huggulegt og nemendur prúðbúnir. Upplesturinn var skapandi með spennandi hreyfingum og tónlistaratriði gerðu daginn hátíðlegan. Við erum afar stolt af okkar frábæru nemendum og skapandi starfsfólki😊...
Lesa meiraERASMUS ferð til Grikklands
Dagana 22. til 28. apríl síðastliðinn fór hópur nemenda frá Háaleitisskóla í Erasmus+ ferð til Florina í Grikklandi. Hópinn skipuðu fulltrúar úr nemendaráði skólans ásamt fimm nemendum sem höfðu sýnt afbragðs mætingu í félagsmiðstöðina okkar, Fjörháaleiti. Verkefnið sem unnið var að ásamt grískum nemendum ber heitið „Together for wellbeing“. Meginm...
Lesa meiraSkráning í sumarfrístund hafin ☀️🌸
Sumarfrístund fyrir tilvonandi 1. bekkinga (börn fædd 2020), verða opin frá 11. ágúst til skólasetningar ✨ Markmiðin með þessari opnun eru m.a. að brúa bilið milli leik- og grunnskólagöngu nemenda, að aðlögun nýrra leikskólabarna geti hafist sem fyrst að hausti og að aðlaga tilvonandi 1. bekkinga í grunnskólann sinn. Nánari upplýsingar og skráning ...
Lesa meiraUndankeppni Skólahreysti 2026.
Undankeppnin sem Háaleitisskóli tekur þátt í fer fram miðvikudaginn 6. maí kl. 14:00 í íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Það mun rúta fara frá skólanum í hádeginu með fjölda nemenda á unglingastiginu, til þess að skapa sturlaða stemningu og styðja við keppendur okkar. Við hvetjum alla til að ...
Lesa meiraÞróunarverkefni NKG+
Nemendur úr Háaleitisskóla tóku nýverið þátt í þróunarverkefni tengdu NKG+ við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þar unnu nemendur Háaleitisskóla með eigin nýsköpunarhugmyndir í tveggja daga smiðjum og kynntu þær í svokallaðri Ljónagryfju fyrir dómnefnd. Háaleitisskóli lagði fram þrjár hugmyndir og tóku alls níu nemendur þátt. Meðal verkefna var K...
Lesa meiraSýningin Fimmta hvert barn
Ykkur er hér með boðið á heiðursviðburð sýningarinnar Fimmta hvert barn í Hörpu. Þessi sýning byggir á myndum sem nemendur í 17 Réttindaskólum UNICEF sköpuðu, þar á meðal nemendur í Háaleitisskóla. Viðburðurinn fer fram laugardaginn 25. apríl kl. 11. Starfsfólk UNICEF verður á staðnum og kynnir verkefnið ásamt því að Jón Jónsson mætir með gítarinn....
Lesa meiraLestrarátakið hafið!
Lestrarátakið okkar hófst í þessari viku og í dag er þriðji dagurinn. Það má með sanni segja að byrjunin hafi gengið nokkuð vel! Á yngsta stigi hefur skapast mikil keppni og nemendur sýna mikinn áhuga og dugnað við lesturinn. Á miðstigi og elsta stigi er farið rólegar af stað, en við vitum að þar leynist líka mikill kraftur sem á eftir að koma í lj...
Lesa meiraGlæsilegur árangur í Greindu betur!
Það var sannkallaður hátíðardagur miðvikudaginn 8. apríl þegar verðlaun voru afhent í keppninni „Greindu betur“ hjá Hagstofunni. Liðið okkar Oak, skipað þeim Tinnu og Lourdes í 10. bekk, stóð sig frábærlega og hreppti annað sætið með verkefni um ættleiðingar. Garðaskóli sigraði en Brekkuskóli varð í þriðja sæti. Með þessum flotta árangri tryggðu ok...
Lesa meira














