Fréttir
Greindu betur
Það er virkilega ánægjulegt að liðið okkar, Oak (Tinna og Lourdes í 10.bekk), vann annað sæti í upplýsingalæsiskeppninni „Greindu betur“ og tryggði sér jafnframt rétt til þátttöku í Evrópsku tölfræðikeppninni. Grunnskólalið 1. sæti: Garðaskóli - XENOFON með verkefnið Frjósemishlutfall á Íslandi 2. sæti: Háaleitisskóli á Ásbrú - OAK með verkefnið ...
Lesa meiraTónleikar í Hljómahöll
Nemendur í forskóla 2, sem er allur 2. bekkur grunnskólanna, héldu árlega tónleika þar sem með þau léku með lúðrasveit TR og rokkhljómsveitinni. Þetta er í 23. sinn sem tónleikarnir eru haldnir. Á efnisskránni voru ýmis lög flutt á blokkflautu og ásláttarhljóðfæri, auk songs. Nemendur kunnu allt efnið utan bókar þegar komið var að stóru stundinni, ...
Lesa meiraInnritun tilvonandi 1. bekkinga fyrir skólaárið 2026-2027
Innritun er hafin fyrir börn sem eiga að hefja nám í 1. bekk grunnskóla í Reykjanesbæ haustið 2026. Skráning í grunnskóla fer fram á island.is. Í Reykjanesbæ sækja nemendur grunnskóla samkvæmt skólahverfum https://www.reykjanesbaer.is/.../grunnskolar/skolahverfi Við hvetjum foreldra/forráðamenn til að hafa samband ef einhverjar spurningar eru....
Lesa meiraStóra upplestrarkeppnin
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Stapa þriðjudaginn 10. mars. Þar kepptu nemendur frá öllum sjö grunnskólum Reykjanesbæjar. Keppnin hefst formlega á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember og lýkur með lokakeppninni. Markmið keppninnar er fyrst og fremst að vekja athygli á vönduðum upplestri og framsögn. Fulltrúar Háaleitisskóla vor...
Lesa meiraSjónlistardagurinn
Háaleitisskóli sýnir með stolti listaverk eftir nemendur í 3.-10. bekk skólans í tilefni Sjónlistadagsins. Sjónlistadagur verður haldinn hátíðlegur 11. mars og verður fagnað í grunnskólum á öllum Norðurlöndum. Á þessu ári vinna grunnskólar undir innblæstri frá Charles McGee frá Bandaríkjunum. Listaverkin eru þar sem form, línur, punktar og endurtek...
Lesa meiraPangea stærðfræðikeppnin
Nemendur í 8. og 9. bekk við Háaleitisskóli tóku þátt í fyrstu umferð Pangea stærðfræðikeppnin í febrúar. Pangea stærðfræðikeppnin er ætluð öllum nemendum í 8. og 9. bekk grunnskóla landsins. Markmið keppninnar er að efla áhuga ungs fólks á stærðfræði, styrkja sjálfstraust nemenda í greininni og hvetja þá til að takast á við krefjandi viðfangsefni....
Lesa meiraGettu enn betur
Nemendur okkar tóku þátt í Gettu enn betur í gær. Keppnin fór fram í Heiðarskóla klukkan 17:00. Krakkarnir stóðu sig með stakri prýði og eiga skilið risastórt hrós fyrir flotta frammistöðu. Þetta var ótrúlega skemmtilegt og erum við afar stolt af okkar fólki. Við hlökkuðum mikið til að fá að taka þátt í þessari flottu keppni aftur á næsta ári. Full...
Lesa meiraPítsuveisla
Lestrarsprettinum er nú lokið og við þökkum ykkur kærlega fyrir þátttökuna. Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að fylgjast með því hversu margir nemendur lögðu aukinn kraft í lesturinn á þessu tímabili. Sigurvegari í lestrarsprettinum að þessu sinni er 7. bekkur, en nemendur þar lásu samtals í 11.414 mínútur, sem er glæsilegur árangur. Í öðru s...
Lesa meiraViðburðarík næsta vika
Framundan eru nokkrir viðburðir sem gott er að hafa í huga: Mánudagur 16. febrúar (Bolludagur): Þennan dag mega nemendur gjarnan taka með sér bollur í skólann. Þriðjudagur 17. febrúar (Sprengidagur): hefðbundinn skóladagur, boðið er upp á saltkjöt og baunir í hádeginu. Miðvikudagur 18. febrúar (Öskudagur): Vinsamlegast athugið að öskudagur er skert...
Lesa meira














