18. nóvember 2026

Birgitta Haukdal heimsótti Háaleitisskóla

Birgitta Haukdal heimsótti Háaleitisskóla

Í dag fengum við skemmtilega heimsókn þegar Birgitta Haukdal, söngkona og rithöfundur, kom til okkar og hitti nemendur í 1.–4. bekk. Birgitta er mörgum börnum að góðu kunn fyrir bækurnar um Láru og Ljónsa, sem notið hafa mikilla vinsælda hjá yngstu lesendunum.

Heimsóknin heppnaðist einstaklega vel. Birgitta er lífleg í flutningi og las upp af mikilli innlifun, svo sögupersónurnar lifnuðu við. Nemendur hlustuðu af athygli og áhuga og greinilegt var að upplesturinn hreyfði við þeim.

Heimsóknir sem þessar eru dýrmætar. Þær kveikja lestraráhuga og sýna nemendum hvað bækur geta verið skemmtilegar og spennandi. Þær styðja einnig vel við áherslu skólans á læsi og íslenskt mál.

Við þökkum Birgittu kærlega fyrir komuna og frábæra stund!

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • Farsæld barna
  • Reykjanesbær