16. nóvember 2026

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu

 Í dag, 16. nóvember, fögnum við degi íslenskrar tungu. Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, skálds og náttúrufræðings, sem fæddist árið 1807. Jónas auðgaði íslenskuna með ljóðum sínum og fjölmörgum nýyrðum sem við notum enn í dag.

Í tilefni dagsins fengum við góða gesti þegar leikskólarnir Skógarás og Völlur komu í heimsókn og sungu fyrir okkur. Nemendur í 1., 3., 5. og 7. bekk stigu einnig á svið með söngatriði. Þau Viktoría Von, Ásgeir og Brynja fluttu frumsamið ljóð og fengu dynjandi lófaklapp að upplestri loknum.

 

Íslenskan er lykill að samfélaginu okkar. Hún opnar dyr að námi, vináttu og þátttöku í öllu því sem fram fer í kringum okkur. Í Háaleitisskóla eru töluð yfir 30 tungumál og fyrir marga nemendur okkar er íslenskan annað eða jafnvel þriðja tungumálið. Það er aðdáunarvert að fylgjast með þeim tileinka sér nýtt mál af miklum kjarki og dugnaði.

 

Á degi íslenskrar tungu minnum við okkur á að tungumálið lifir aðeins ef það er notað. Um leið fögnum við því að móðurmál nemenda okkar eru dýrmætur fjársjóður sem styrkir þá í íslenskunáminu. Það er okkur öllum hvatning til að lesa saman, spjalla á íslensku, segja hvert öðru sögur og leika okkur með tungumálið, bæði heima og í skólanum.

 

Til hamingju með daginn, kæra skólasamfélag!

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • Farsæld barna
  • Reykjanesbær