6. maí 2026

ERASMUS ferð til Grikklands

ERASMUS ferð til Grikklands

Dagana 22. til 28. apríl síðastliðinn fór hópur nemenda frá Háaleitisskóla í Erasmus+ ferð til Florina í Grikklandi. Hópinn skipuðu fulltrúar úr nemendaráði skólans ásamt fimm nemendum sem höfðu sýnt afbragðs mætingu í félagsmiðstöðina okkar, Fjörháaleiti.
Verkefnið sem unnið var að ásamt grískum nemendum ber heitið „Together for wellbeing“. Meginmarkmið þess var að kanna mikilvægt samspil geðheilsu, líkamlegrar hreyfingar og mannréttinda. Lögð var áhersla á að styrkja ungt fólk með því að nota íþróttir sem hagnýt og aðgengileg verkfæri til að efla andlega vellíðan, byggja upp seiglu og stuðla að félagslegri þátttöku.
Á meðan dvölinni stóð heimsóttum við skóla og félagsmiðstöð í Florina þar sem mikið var unnið í teymum með öðrum nemendum. Þátttakendur tóku þátt í fjölbreyttri útivist, ferðum í náttúruna og inngildandi leikjum sem hannaðir voru til að efla teymisvinnu og brjóta niður hindranir. Samhliða þessu fóru fram daglegar umræður um mannréttindi og rétt ungs fólks til heilbrigðis.
Það er okkur mikil ánægja að segja frá því að nemendur okkar þroskuðust og döfnuðu í þessu breytta umhverfi. 
Það er svo sannarlega gaman að vera nemandi í Háaleitisskóla.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær