Flöggum saman fyrir heimsmarkmiðunum
Í dag, 25. september, tekur Háaleitisskóli þátt í Fánadegi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Markmið dagsins er að vekja athygli á heimsmarkmiðunum 17 og mikilvægi sjálfbærrar þróunar, jafnréttis og alþjóðlegrar samvinnu. Fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna er hluti af alþjóðlega framtakinu #TogetherForTheSDGs, þar sem skólar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök sameinast um að sýna stuðning við heimsmarkmiðin.
Sem UNESCO-skóli leggur Háaleitisskóli áherslu á að fræða nemendur um sjálfbærni, mannréttindi og ábyrga samfélagsþátttöku. Með þátttöku í deginum viljum við minna á að öll getum við lagt okkar af mörkum til betri framtíðar fyrir fólk og plánetu.




