Gestur í heimsókn
Í gær kom fyrrverandi nemandi A.T. Mayham Elementary, sem nú er Háaleitisskóli, í skemmtilega heimsókn. Hún gaf nemendum í fjórða bekk enskubækur að gjöf. Sem enskukennari sýndi hún náminu okkar mikinn áhuga. Nemendur voru ófeimnir að spyrja hana margra spurninga og nutu samverunnar. Það var dásamlegt að fá góðan gest og nemendum fannst mjög gaman að fá að spjalla á ensku.




