Gjöf frá foreldrafélaginu
Foreldrafélag Háaleitisskóla kom færandi hendi á vordögum og færði skólanum gjöf að upphæð 250.000 krónur. Gjöfin mun nýtast til að bæta aðstöðu í íþróttahúsinu og kaupa ýmsan búnað sem kemur öllum nemendum til góða. Með fjármununum verður meðal annars fjárfest í boltum, húllahringjum og öðrum tækjum sem stuðla að fjölbreyttari og betri íþróttaiðkun. Við þökkum foreldrafélagi Háaleitisskóla kærlega fyrir góðan stuðning. Gjöfin kemur sér afar vel og við hlökkum til að sjá hvernig hún mun auðga íþróttalíf nemenda skólans.




