Gulur september fimmtudaginn 10. sept
Skólinn okkar ætlar að taka þátt í gulum september á fimmtudaginn 10. september. Af því tilefni viljum við hvetja nemendur til að klæðast einhverju gulu þann dag og taka þannig þátt í mikilvægu samfélagsverkefni. 💛
Gulur september er vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir þar sem stofnanir, félagasamtök, skólar, vinnustaðir og samfélagið allt eru hvött til að taka höndum saman. Markmiðið er að efla umræðu um geðrækt, auka þekkingu á sjálfsvígsforvörnum og minna okkur á mikilvægi þess að sýna hvert öðru umhyggju, spyrja hvernig fólki líður og vita hvert hægt er að leita eftir stuðningi.
Við vonum að sem flestir taki þátt og hjálpi okkur að lita skólann gulan þennan dag. Það þarf ekki mikið, gul peysa, bolur, sokkar eða annar gulur fylgihlutur gerir gæfumuninn. 💛




