Hitakútur frá Háaleitisskóla komst áfram í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna
Nemendurnir Arantza og Ísabel í 5. bekk Háaleitisskóla náðu frábærum árangri í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna með hugmynd sína Hitakútur og komust áfram í lokahóp keppninnar.
Hitakútur er mjúkur bangsi sem er hannaður til að hjálpa fólki að halda á sér hita á köldum dögum. Í bangsann er hægt að setja hendurnar til að ylja fingurna og jafnframt getur hann haldið á spjaldtölvu eða síma þannig að notandinn geti horft á myndbönd, kvikmyndir eða annað efni á meðan hann nýtur hlýjunnar. Hugmyndin sameinar því þægindi, notagildi og skapandi hönnun.
Sem hluti af keppninni tóku stúlkurnar þátt í tveggja daga nýsköpunarsmiðjum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands þar sem þær unnu áfram að þróun hugmyndarinnar ásamt öðrum þátttakendum víðs vegar að af landinu. Verkefninu lauk síðan með glæsilegri sýningu og hátíð síðastliðinn laugardag þar sem nemendur kynntu hugmyndir sínar fyrir gestum og gangandi.
Á meðal gesta voru forsetahjón Íslands sem sýndu verkefnum nemenda mikinn áhuga. Arantza og Ísabel fengu tækifæri til að hitta forsetahjónin og taka mynd með þeim, sem var án efa eftirminnileg stund í lok vel heppnaðrar keppnisferðar.
Sérstakar þakkir fær Amaya, einnig nemandi í 5. bekk, sem fór með stúlkunum og veitti þeim mikilvægan stuðning. Þar sem Arantza er enn að læra bæði íslensku og ensku reyndist aðstoð Amayu afar dýrmæt. Með nærveru sinni, túlkun og stuðningi hjálpaði hún til við að gera þátttöku Arontzu enn ánægjulegri og auðveldari. Framlag hennar sýnir vel þann samhug, vináttu og samvinnu sem einkenna nemendur Háaleitisskóla.
Við í Háaleitisskóla erum afar stolt af þeim Arontzu, Ísabel og Amayu og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn. Þær hafa með þátttöku sinni sýnt frumkvæði, hugmyndaauðgi, samvinnu og þann nýsköpunarkraft sem býr í ungu fólki þegar það fær tækifæri til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika.




