ÍSÍ-hlaupið
ÍSÍ-hlaupið var haldið þann 6. október sl. í blíðskapar veðri. Hlaupið tengir okkur öll saman í gegnum hreyfingu, gleði og samstöðu. Markmið hlaupsins er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og njóta þess að vera úti í fersku lofti.
Allir nemendur skólans tóku þátt og sýndu hvað í þeim býr. Hver og einn hljóp á sínum eigin forsendum og saman söfnuðu við dýrmætum kílómetrum fyrir skólann okkar. Það skiptir ekki máli hvort nemandi hleypur hratt eða hægt, því hver einasti metri telur. Starfsfólk skólans stóð á hliðarlínunni og hvatti alla dyggilega, sem skapað mikla stemmningu á svæðinu.
Stuðningur til hreyfinga að heiman gefur nemendum aukinn kraft og áhuga og verður jafnvel til þess að nemandinn skrái sig í hreyfingu. Hreyfing bætir nefnilega andlega og líkamlega líðan okkar allra.
Áfram okkar fólk! Áfram við! Áfram Háaleitisskóli!




