20. nóvember 2026

Jólasögustund á bókasafninu

Jólasögustund á bókasafninu

Þriðjudaginn 17. nóvember fóru nemendur í 1. SGG í heimsókn í jólasögustund í Bókasafns Reykjanesbæjar. Þar hefur verið sett upp skemmtilegt og gagnvirkt jólaland sem vakti mikla lukku.

 

Heimsóknin hófst á upplestri á jólasögu sem tengdist jólalandinu. Eftir lesturinn fengu börnin að skoða sig um og kynnast jólalandinu af eigin raun. Stundin var bæði skemmtileg og áhugaverð. Börnin voru mjög áhugasöm og hegðun þeirra var alveg til fyrirmyndar. Það er alltaf gaman að sjá hvernig sögur og ævintýri kveikja forvitni og lestraráhuga hjá yngstu nemendunum okkar. Í dag, föstudag, er svo komið að 1. HB að heimsækja jólalandið.

 

Við þökkum starfsfólki bókasafnsins kærlega fyrir hlýjar móttökur!

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • Farsæld barna
  • Reykjanesbær