Krufning nemenda
Nemendur í 8.–10. bekk tóku þátt í spennandi verklegri æfingu í náttúrufræði þar sem þeir fengu tækifæri til að kryfja brjóstholslíffæri úr svíni.
Markmið verkefnisins var að nemendur fengju að kynnast byggingu og starfsemi líffæra og tengja þannig bóklegt nám við verklega reynslu. Nemendur skoðuðu meðal annars hjörtu og lungu og fengu betri innsýn í starfsemi þeirra.
Verkefnið vakti mikinn áhuga meðal nemenda sem tóku virkan þátt og spurðu fjölmargra spurninga. Það var ánægjulegt að sjá hversu áhugasamir og duglegir nemendur voru.
Verklega æfingin tókst mjög vel og var bæði fræðandi og skemmtileg upplifun fyrir nemendur.




