LEGO-hjörtu efla verkfræðilega hugsun og teymisvinnu
Nemendur tóku nýlega þátt í skemmtilegu og lærdómsríku LEGO-verkefni þar sem reynir á bæði verkfræðilega hugsun, sköpun og samstarf. Áskorunin fólst í að byggja 30 sentímetra hátt hjarta úr LEGO-kubbum sem gæti staðið sjálfstætt og haldist heilt þegar því væri lyft upp. Við lausn verkefnisins þurftu nemendur meðal annars að huga að hæð, þyngd, jafnvægi og styrkleika smíðinnar. Efsti miðhluti hjartans reyndist sérlega krefjandi vegna þyngdarinnar. Nemendur þurftu því að prófa sig áfram, endurskoða hugmyndir sínar og finna leiðir til að styrkja mannvirkin.
Lausnirnar voru fjölbreyttar og skapandi. Tveir nemendur leystu t.d. hæðarvandann með því að smíða sérstakt stoð undir hjartað. Önnur þeirra kann aðeins fáein orð í íslensku og hin var á sínum fyrsta skóladegi. Þrátt fyrir það náðu þær vel saman, skildu verkefnið og fundu frumlega lausn í sameiningu.
Verkefnið sýnir vel hvernig verkleg og sjónræn viðfangsefni geta skapað sameiginlegt tungumál í nemendahópnum. Þau gefa öllum tækifæri til þátttöku, samstarfs og þess að sýna styrkleika sína.








