13. apríl 2026

Lestrarátakið hafið!

Lestrarátakið hafið!

Lestrarátakið okkar hófst í þessari viku og í dag er þriðji dagurinn. Það má með sanni segja að byrjunin hafi gengið nokkuð vel!

Á yngsta stigi hefur skapast mikil keppni og nemendur sýna mikinn áhuga og dugnað við lesturinn. Á miðstigi og elsta stigi er farið rólegar af stað, en við vitum að þar leynist líka mikill kraftur sem á eftir að koma í ljós á næstu dögum.

Við hvetjum alla nemendur til að lesa og taka þátt!  Við hvetjum foreldra einnig til að lesa og styðja við lesturinn heima næstu daga á meðan á átakinu stendur. 

Gleðilegan lestur!

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær