Ljósanæturgleði í Háaleitisskóla 4. september
Þann 4. september héldum við Ljósanæturgleði í Háaleitisskóla og var dagurinn fullur af gleði, söng og samveru.
Dagurinn hófst með glæsilegri skrúðgöngu þar sem nemendur gengu saman um skólalóðina og spiluðu á hljóðfæri. Stemningin var frábær og gleðin smitaði út frá sér. Að því loknu söfnuðumst við saman á útisvæðinu þar sem við tókum á móti elstu börnum leikskólanna sem komu í heimsókn til okkar.
Saman sungum við nokkur lög og dönsuðum áður en haldið var áfram með dagskrána. Það var einstaklega ánægjulegt að sjá nemendur og gesti njóta samverunnar og taka virkan þátt í hátíðarhöldunum.
Klukkan 11:00 var svo boðið upp á pítsuveislu sem féll í góðan jarðveg hjá öllum viðstöddum.
Við viljum færa nemendum okkar sérstakt hrós fyrir frábæra þátttöku og fyrirmyndarframkomu. Nemendur sýndu jákvætt viðhorf, samvinnu og virðingu í garð hvers annars og gesta okkar. Þau voru skólanum til mikils sóma og áttu stóran þátt í því að gera daginn svo vel heppnaðan.




