Ljósanætursetning 3. september
Þann 3. september tóku nemendur í 3., 7. og 10. bekk þátt í hátíðlegri Ljósanætursetningu. Viðburðurinn tókst afar vel og var stemningin frábær.
Sérstakur gestur dagsins var Páll Óskar sem kom og söng fyrir nemendur. Tónlistaratriðið vakti mikla lukku og sköpuðu nemendur og gestir saman líflega og skemmtilega stemningu.
Nemendurnir skemmtu sér einstaklega vel og voru skólanum til mikils sóma. Þeir sýndu góða framkomu, virðingu og jákvætt viðmót allan tímann og voru sannarlega til fyrirmyndar.




