2. október 2026

Nordplus verkefni

Nordplus verkefni

Við fengum nemendur og kennara frá Lettlandi, Litháen og Eistlandi í heimsókn til okkar þann 22. september. Heimsóknin er partur af Nordplus verkefni sem heitir Ripples of Knowledge sem hópurinn tekur þátt í í samstarfi við GeoCamp. Þau heimsóttu félagsmiðstöðina okkar og á þriðjudagsmorgun byrjuðu þau á frábærri kynningu sem nemendur 9.bekkjar gerðu, og svo tóku þau þátt í bóklegum og verklegum náttúrufræðitíma með miðstigi.

Verkefnið var bæði innandyra og utandyra og fengu gestirnir aldeilis að finna fyrir íslenska veðrinu á meðan á útikennslunni stóð. Verkefnið snérist um að skoða krafta t.d. hvernig hlutir hreyfast, hvaðan orkan kemur og notuðu þau hversdagslega hluti úr nærumhverfinu til að rannsaka það.

Einn hópur notaði pappírsskutlur, annar vegasalt, sá þriðji skoðaði bíla og fjórði hópurinn notaði rólu á leikvelli skólans. Það reyndi á eðlisfræðilegan bakgrunn nemenda því þau þurftu að spreyta sig á spurningum eins og „hvað gerist þegar við ýtum á róluna?” og „afhverju heldur rólan áfram eftir að við hættum að ýta?”. Eldri nemendur aðstoðuðu þá yngri og gekk samvinnan ljómandi vel.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • Farsæld barna
  • Reykjanesbær