Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) hefur valið Drífu Hjördísi Thorstensen sem handhafa VILJA
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) hefur valið Drífu Hjördísi Thorstensen sem handhafa VILJA - Hvatningarverðlauna kennara árið 2026.
Nýsköpunarstarfið í Háaleitisskóli á Ásbrú hafði djúpstæð áhrif á dómnefndina. Það sem vóg þyngst í ákvörðun nefndarinnar var sú kerfisbundna og metnaðarfulla vinna sem átt hefur sér stað við að gera nýsköpun og tæknimennt að fastri og jafnrétthárri verkgrein fyrir alla nemendur skólans.
Sérstaklega var hrifning með það hvernig Drífa hefur nýtt nýsköpunina sem alþjóðlegt tungumál sköpunar í fjölmenningarlegu umhverfi skólans. Með því að brjóta niður tungumálamúra og virkja fjölbreyttan nemendahóp á jafnréttisgrundvelli, þar sem allir fá tækifæri til að sýna sínar sterku hliðar, hafið þið skapað sanna fyrirmynd sem eftirtektarvert er fyrir skólasamfélagið allt á landsvísu.
Við óskum Drífu og starfsfólki Háaleitisskóla innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu🥰




