Snjallsjónaukar efla vísindastarf í grunnskólum Reykjanes jarðvangs
Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari, afhenti nýverið ellefu snjallsjónauka sem munu nýtast grunnskólum innan Reykjanes jarðvangs. Hver skóli fær einn sjónauka að gjöf. Sjónaukarnir henta vel til að skoða himingeiminn, svo sem sólina, tunglið og reikistjörnur, en einnig fugla, dýr og önnur fyrirbæri í náttúrunni. Hægt er að taka bæði ljósmyndir og myndskeið með sjónaukunum, sem opnar fjölbreytta möguleika í lifandi og skapandi vísindafræðslu. Gjöfin er að frumkvæði Reykjanes jarðvangs og er styrkt af Kadeco og atNorth gagnaverinu. Erum við öllum sem komu að verkefninu afar þakklát.
Í haust verða haldin námskeið fyrir kennara um notkun sjónaukanna og stefnt er að því að útbúa námsefni þeim til stuðnings. Vonir standa til að verkefnið efli áhuga barna á náttúru, vísindum og undrum alheimsins.




