11. mars 2026

Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Stapa þriðjudaginn 10. mars. Þar kepptu nemendur frá öllum sjö grunnskólum Reykjanesbæjar. Keppnin hefst formlega á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember og lýkur með lokakeppninni. Markmið keppninnar er fyrst og fremst að vekja athygli á vönduðum upplestri og framsögn.

Fulltrúar Háaleitisskóla voru þau Brynja Liv á Svöðu Siriardóttir og Ásgeir Marinó Gylfason. Drífa Hjördís og Friðgerður sáu um að þjálfun nemenda í 7. bekk og færum við þeim þakkir fyrir. Rithöfundur keppninnar var Ólafur Páll Jónsson og lásu nemendur svipmyndir úr skáldsögunni Fjársjóðsleit í Granada ásamt því að flytja tvö ljóð. Dómarar keppninnar voru þau Guðbjörg Sveinsdóttir, Anna Karlsdóttir Taylor og Sighvatur Jónsson. Nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fluttu tónlistaratriði í upphafi keppninnar og á milli atriða. Ingibjörg Einarsdóttir, formaður Radda, flutti ávarp þar sem 30 ár eru liðin frá því að keppnin var sett á laggirnar. Helgi Arnarson, sviðsstjóri Menntasviðs flutti ávarp og afhenti keppendum bókina Skólastjórinn, eftir Ævar Þór Benediktsson, að gjöf ásamt rós.

Magni Sær, sigurvegari Stóru upplestarkeppninnar frá því í fyrra kynnti höfund keppninnar. 

 

Við óskum Ásgeiri og Brynju til hamingju með frábæran árangur og þökkum þeim fyrir að koma fram fyrir hönd skólans.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær