Sumarlestur
Kynning á sumarlestrinum fór fram 18. maí í Háaleitisskóla og fannst nemendum hún mjög áhugaverð. Háaleitisskóli sigraði í sumarlestrinum í fyrra og stefnum við aftur á 1. sætið í ár. Þessi flotti lestraráhugi gefur öllum í skólanum mikinn kraft.
Við hvetjum alla að lesa til að ná okkar flotta markmiði
Í ár hvetur Gúndi geithafur öll 6–12 ára börn til að hjálpa honum að finna gras til að bíta. Með vegabréf í hönd safna þau stimplum eða límmiðum, happamiðum og fá skemmtileg þrautablöð – eftir því sem þau lesa meira.
Hvað þarf að gera? - Vera með vegabréfið (afhent í skólum eða sækja á bókasafninu).
Hefja lestur!
Markmiðið er að lesa í 15 mínútur á dag og merkja þá við hvert barnið er komið á leið Gúnda í grasleitinni miklu.




