Sumarlestur
Háaleitisskóli náði glæsilegum árangri í sumarlestursverkefni og lenti í 2. sæti af öllum grunnskólum Reykjanesbæjar. Nemendur lásu af kappi, voru dugleg að mæta á bókasafn skólans. Háaleitisskóli og lestrarteymi skólans verðlaunaði þá nemendur sem voru hvað duglegust að mæta í sumar. Lestrarteymi Háaleitisskóla tók vel á móti nemendum, aðstoðaði þau við bókaval og hvatti þau til að uppgötva nýjar sögur. Lestur eykur orðaforða, eflir skilning og ýtir undir ímyndunarafl.
Skólinn þakkar þátttakendum og hvetur nemendur til að halda áfram að lesa.










