Sýningin Fimmta hvert barn
Ykkur er hér með boðið á heiðursviðburð sýningarinnar Fimmta hvert barn í Hörpu. Þessi sýning byggir á myndum sem nemendur í 17 Réttindaskólum UNICEF sköpuðu, þar á meðal nemendur í Háaleitisskóla.
Viðburðurinn fer fram laugardaginn 25. apríl kl. 11. Starfsfólk UNICEF verður á staðnum og kynnir verkefnið ásamt því að Jón Jónsson mætir með gítarinn.
Sýningin Fimmta hvert barn samanstendur af myndum sem yfir 800 börn í 17 Réttindaskólum UNICEF hafa skapað. Þetta er engin venjuleg myndlistarsýning, eins og þið vitið. Henni er ætlað að vekja áhorfandann til umhugsunar um stöðu og réttindi barna um allan heim sem búa við stríð og afleiðingar þeirra.
Ef þið komist ekki á heiðursviðburðinn þá er sýningin opin frá 21. apríl til 3. maí í rýminu Hafnarstræti, beint af augum ef gengið er inn um aðalinngang Hörpu.
Hlökkum til að sjá ykkur og við hvetjum ykkur til að leita að ykkar mynd!




