Þróunarverkefni NKG+
Nemendur úr Háaleitisskóla tóku nýverið þátt í þróunarverkefni tengdu NKG+ við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þar unnu nemendur Háaleitisskóla með eigin nýsköpunarhugmyndir í tveggja daga smiðjum og kynntu þær í svokallaðri Ljónagryfju fyrir dómnefnd. Háaleitisskóli lagði fram þrjár hugmyndir og tóku alls níu nemendur þátt. Meðal verkefna var Knotless, hárbursti með innbyggðum vökvabrúsa og sjálfhreinsandi virkni. Þá kynntu nemendur hugmyndina NXT, sem er líkamlegur sparibanki tengdur við app sem hjálpar notendum að ná sparnaðarmarkmiðum, bankinn læsist þar til markmiði er náð og dregur þannig úr freistingum. Einnig vakti athygli hugmynd að gervihendi sem tengist miðtaugakerfi, en nemandi smíðaði frumgerð úr LEGO.
Nemendur unnu markvisst að því að fínpússa kynningar sínar og stóðu sig afar vel í Ljónagryfjunni, þar sem þeir svöruðu spurningum dómara af öryggi og fagmennsku. „Nemendur komu hlaupandi inn á svið, fluttu kynningar af öryggi og svöruðu svo spurningum dómara mjög vel. Þetta var þvílík upplifun,“ segir Drífa Hjördís Thorstensen kennari hópsins. Verkefnið er tilraunaverkefni sem stefnt er að því að þróa áfram í keppni næsta vetur. Það gefur nemendum mikilvægt tækifæri til að þjálfa nýsköpunarhugsun og upplifa hvernig hugmyndir geta orðið að veruleika.




