21. mars 2026

Tónleikar í Hljómahöll

Tónleikar í Hljómahöll

Nemendur í forskóla 2, sem er allur 2. bekkur grunnskólanna, héldu árlega tónleika þar sem með þau léku með lúðrasveit TR og rokkhljómsveitinni. Þetta er í 23. sinn sem tónleikarnir eru haldnir.

Á efnisskránni voru ýmis lög flutt á blokkflautu og ásláttarhljóðfæri, auk songs. Nemendur kunnu allt efnið utan bókar þegar komið var að stóru stundinni, auk þess sem þau hafa lært á undanförnum dögum í skólanum að fylgja stjórnanda og tileinka sér góða sviðsframkomu.

Kennarar í 2. bekk ásamt tónmenntakennara lýsa yfir miklu stolti af hópnum, sem voru skólanum algjörlega til fyrirmyndar í framkomu og flutningi. Nemendur hafa sýnt á undanförnum vikum jákvætt hugarfar og mikinn dugnað í æfingum, bæði í kennslustund og heimafyrir.

Við þökkum enn og aftur Tone Solbakk tónmenntakennar kærlega fyrir að undirbúa nemendur okkar af slíkri fagmennsku. Eins þökkum við öllum foreldrum fyrir frábæra  mætingu og stuðning á tónleikunum sjálfum.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær