UNICEF Hreyfingin og fræðsla
Miðvikudaginn 27. maí héldum við sérstakan viðburðardag. Það var uppbrot á skólastarfinu frá kl. 10:00 til 11:15 þar sem UNICEF-hreyfingin fór fram. Settar voru upp stöðvar víðsvegar um og við skólann, þar sem boðið var upp á fjölbreytta og skemmtilega hreyfingu. Meðal annars voru dansstöð, skot í mark, armbeygjur, reipitog, sipp, staðbundið skokk og teikningar af greinum Barnasáttmálans.
Nemendur söfnuðu svo límmiðum í heimspassann sinn sem er límmiðabók en jafnframt heimskort og minnir á að öll börn, um allan heim, eiga sömu réttindi. Þau fengu límmiða fyrir hvert lokið verk.
UNICEF - Hreyfingin er fræðslu- og fjáröflunarverkefni fyrir grunnskólabörn á Íslandi. Markmið þess er að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og virkja þau til samstöðu með jafnöldrum sínum víða um heim. Börnin fá vandaða fræðslu um réttindi sín, störf UNICEF í þágu allra barna og ólíkar aðstæður jafnaldra sinna í öðrum löndum. Hugmyndin er að þau átti sig á að öll börn eiga sömu réttindi og að saman geti þau lagt sitt af mörkum til að gera heiminn að betri stað.
Markmið verkefnisins er einnig til að vekja athygli á söfnun fyrir verkefnið “Aftur í skóla á Gaza”. Háaleitisskóli hefur stofnað söfnunarsíðu þar sem einstaklingar geta styrkt málefnið og má finna þá síður hér: https://sofnun.unicef.is/teams/haaleitisskoli
Nánar um “Aftur í skóla á Gaza” má finna hér: https://sofnun.unicef.is/.../hreyfingin-2026-aftur-i-skola




