16. júní 2026

Vorhátíð Háaleitisskóla

Vorhátíð Háaleitisskóla

Vorhátíð Háaleitisskóla var haldin hátíðlega í blíðskapar veðri þriðjudaginn 9. júní og tókst einstaklega vel. Nemendur og starfsfólk áttu saman ánægjulegan dag þar sem gleði og góð stemning einkenndu hátíðina. Margt skemmtilegt var í boði á svæðinu. Hoppukastalar vöktu mikla lukku hjá yngstu nemendunum, grillaðar pylsur voru bornar fram og veltibíllinn vakti bæði áhuga og umræður hjá þeim sem eldri eru. Þá gladdi Brúðuleikhúsið gesti með skemmtilegri sýningu.

Dagurinn var líflegur og gleðin skein úr andlitum nemenda. Við þökkum öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar fyrir þeirra framlag. Vorhátíðin var sannarlega skemmtilegur endapunktur á góðu skólaári.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • Farsæld barna
  • Reykjanesbær