Heimsókn leikskólans Vallar í Háaleitisskóla

Í dag komu börn og starfsfólk frá leikskólanum Velli í heimsókn í Háaleitisskóla. Um var að ræða skemmtilega kynnisferð þar sem leikskólabörnin fengu tækifæri til að kynnast skólanum betur og skoða aðstöðuna. Þau tóku þátt í tónmennta- og nýsköpunartímum, fengu innsýn í fjölbreytt skólastarf og upplifðu líflegt námsumhverfi. Heimsóknin gekk mjög vel og börnin sýndu mikinn áhuga bæði á umhverfinu og því sem þau fengu að kynnast.