26. maí 2025

Kynning á vinnuskólanum

Kynning á vinnuskólanum

Í morgun fengu nemendur í 8. – 10 bekk kynningu á Vinnuskóla Reykjanesbæjar.  Kynningin fór fram á sal skólans.  Farið var stuttlega yfir starfsemi skólans og hvað er í boði.  Nemendur hlustuðu með athygli og síðan var boðið upp á spurnngar.

 Vinnuskóli Reykjanesbæjar býður öllum grunnskólanemum í 8. - 10. bekk sumarstarf. Vinnuskólinn er almennt fyrsta starf ungmenna og leggjum við áherslu á fræðandi, skemmtilegt og skapandi starfsumhverfi. Ungmenni fá tækifæri til þess að mynda ný tengsl, ásamt því að öðlast reynslu í mannlegum samskiptum og virðingu gagnvart umhverfi sínu. Vinnuskólinn hefur það að markmiði virkni, forvarnir og fræðsla séu í fyrirrúmi.

Sjá nánar

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær