Lífshlaupið í Háaleitisskóla
Metnaðarfull dagskrá í Lífshlaupinu í Háaleitisskóla bæði fyrir nemendur og starfsfólkið. Mánudaginn 9. febrúar fór fram spennandi blakleikur þar sem starfsfólk og nemendur mættust. Leiknum lauk með jafntefli, 1-1, í mikilli spennu. Góð stemning ríkti í íþróttasalnum og var viðburðurinn mikilvæg hvatning fyrir alla viðstadda til að huga vel að daglegri hreyfingu og heilsu.




