Nýtt verkefni
Við viljum kynna fyrir ykkur nýtt samstarfsverkefni skólastjórnenda og nemenda í 10. bekk sem miðar að því að tryggja öryggi nemenda á yngsta stigi við komu í skólann. Nemendur í 10. bekk munu héðan í frá sjá um að fylgja nemendum á yngsta stigi yfir götuna og vera þeim innan handar á sleppisvæðinu við yngsta stigið. Við biðjum ykkur vinsamlegast að sýna þessum nemendum fyllstu kurteisi og virðingu í þeirra mikilvægu störfum fyrir skólasamfélagið.
Jafnframt viljum við beina þeim tilmælum til foreldra að leggja ekki bílum á sleppisvæðinu, heldur eingöngu hleypa nemendum út úr bílunum. Með því að virða þetta fyrirkomulag tryggjum við betra umferðarflæði og hámarksöryggi barna okkar.




