4. mars 2026

Pangea stærðfræðikeppnin

Pangea stærðfræðikeppnin

Nemendur í 8. og 9. bekk við Háaleitisskóli tóku þátt í fyrstu umferð Pangea stærðfræðikeppnin í febrúar.

Pangea stærðfræðikeppnin er ætluð öllum nemendum í 8. og 9. bekk grunnskóla landsins. Markmið keppninnar er að efla áhuga ungs fólks á stærðfræði, styrkja sjálfstraust nemenda í greininni og hvetja þá til að takast á við krefjandi viðfangsefni. Jafnframt er leitast við að styðja við áframhaldandi framfarir þeirra nemenda sem sýna framúrskarandi árangur.

Alls voru 4.671 nemendur skráðir í keppnina á landsvísu, þar af 2.411 í 8. bekk og 2.260 í 9. bekk.

Úr Háaleitisskóla komust 9 nemendur í 8. bekk og 18 nemendur í 9. bekk áfram í aðra umferð keppninnar sem fram fer í næstu viku.

Skólinn óskar þessum nemendum innilega til hamingju með árangurinn og þakkar öllum sem tóku þátt fyrir þeirra framlag.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær