13. febrúar 2026

Pítsuveisla

Pítsuveisla

Lestrarsprettinum er nú lokið og við þökkum ykkur kærlega fyrir þátttökuna. Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að fylgjast með því hversu margir nemendur lögðu aukinn kraft í lesturinn á þessu tímabili.

Sigurvegari í lestrarsprettinum að þessu sinni er 7. bekkur, en nemendur þar lásu samtals í 11.414 mínútur, sem er glæsilegur árangur. Í öðru sæti er 3.OÞ með 7.559 mínútur og í þriðja sæti er 3.GE með 7.369 mínútur.

Einn nemandi skaraði sérstaklega fram úr í skólanum, en það er Brynja Lív í 7. bekk. Hún las samtals 2.087 mínútur á þeim þremur vikum sem spretturinn stóð yfir.

Við þökkum ykkur aftur fyrir ykkar framlag við að hvetja nemendur og efla læsi innan skólans.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær