18. júní 2026

Sjálfsmatsskýrsla Háaleitisskóla 2025–2026 komin út

Sjálfsmatsskýrsla Háaleitisskóla fyrir skólaárið 2025–2026 er nú komin út og hefur verið birt á heimasíðu skólans. Í skýrslunni er að finna heildstæða umfjöllun um starfsemi skólans, niðurstöður mats á helstu þáttum skólastarfsins og þær áherslur sem lagðar verða til grundvallar áframhaldandi þróun og umbótum. Sjálfsmat er mikilvægur þáttur í daglegu skólastarfi Háaleitisskóla og byggir á ákvæðum laga og aðalnámskrár grunnskóla. Markmið matsins er meðal annars að efla gæði náms og kennslu, stuðla að vellíðan nemenda og starfsfólks og tryggja að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu skólans.

Skýrslan gefur góða mynd af því fjölbreytta og metnaðarfulla starfi sem unnið er innan skólans. Hún nýtist jafnframt sem mikilvægt verkfæri við að greina styrkleika, forgangsraða umbótum og móta næstu skref í þróun skólastarfsins.

Við hvetjum foreldra, forráðamenn og aðra áhugasama til að kynna sér skýrsluna á heimasíðu skólans.

 

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • Farsæld barna
  • Reykjanesbær