6. júní 2025

Skólaslit

Skólaslit

Skólaslit skólans fóru fram fimmtudaginn 5. maí.  Að þessu sinni fóru þau fram í Hjómahöll. Það voru nemendur í 1. – 6. Bekk sem mættu fyrst ásamt forráðamönnum. Athöfnin byrjaði með tónlistaraðriði þar sem spilað var á fötur. Unnar skólastjóri bauð svo alla velkomna og var með stutt erindi.  Boðið var upp á fleiri tónlistaratriði. Að því loknu komu nemendur upp á svið og fengu afhent vitnisburðinn sinn og þeir sem höfðu unnið til verðlauna fengu verðlaunin sín.  Þegar þessu var lokið var skólanum slitið hjá nemendum í 1. – 6. bekk og héldu þeir glaðir út í sumarfríið.

Þá var komið að skólaslitum hjá nemendum í 8. – 10. bekk.  Unnar skólastjóri bauð  alla velkomna og fól svo Jóhönnu aðstoðarskólastjóra að sjá um athöfnina. Mattías Úlfur formaður nemendafélagsins var með stutt ávarp. Veittar voru ýmsar viðurkenningar.  Nemendur komu svo upp á svið og fengu vitnisburðinn sinn.  Þegar athöfn var lokið var nemendum í 10. bekk og aðstandendur þeirra boðið upp á veitingar.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær