Skólaþing haldið í Háaleitisskóla
Miðvikudaginn 4. febrúar var haldið skólaþing í Háaleitisskóla þar sem nemendur úr 1.–10. bekk komu saman til að ræða skólastarfið, líðan nemenda og hugmyndir að umbótum. Þrír fulltrúar úr hverjum bekk tóku þátt.
Fulltrúi á skólaþingi er rödd bekkjarins. Hlutverk hans eða hennar er að tala fyrir hönd allra nemenda í bekknum – ekki aðeins sjálfan sig. Áhersla var lögð á að fulltrúar myndu:
tala fyrir hönd bekkjarins,
hlusta á allar raddir,
sýna virðingu, jafnvel þegar skoðanir eru ólíkar,
tengja málefni við réttindi barna,
og muna að rödd hvers og eins skiptir máli.
Allir bekkir höfðu haldið bekkjarþing áður en skólaþingið fór fram til að undirbúa sig og æfa lýðræðislega umræðu.
Á skólaþinginu var nemendum skipt í átta hópa sem róteruðu á milli átta stöðva. Á hverri stöð ræddu hóparnir spurningar, hlustuðu hver á annan og skráðu niður hugmyndir sínar. Spurningarnar sneru meðal annars að:
Í hvaða stundum nemendum líður best í skólanum – og hvers vegna.
Í hvaða stundum þeim líður verst og hvað mætti breyta.
Hvernig tryggja megi að öll börn finni að þau tilheyri hópnum.
Hvernig fullorðnir geti betur tekið eftir þegar einhver er út undan.
Hvernig tryggja megi að rödd allra heyrist, líka þeirra sem eru feimnir eða ósáttir.
Hvaða kennsluaðferðir nemendum finnst virka best.
Hvort eitthvað í skólabyggingunni mætti bæta, svo sem merkingar, aðgengi eða leiksvæði.
Hvað nemendum finnst um skólalóðina og hvað vanti þar.
Umræður voru líflegar, uppbyggilegar og sýndu skýrt að nemendur í Háaleitisskóla hafa bæði sterkar skoðanir og mikinn vilja til að taka þátt í að móta skólasamfélagið sitt. Hugmyndir og ábendingar nemenda verða nú nýttar áfram í skólastarfinu í anda lýðræðis, þátttöku og réttinda barna.




