5. júní 2025

Sumarlestur

Sumarlestur

Í sumar verður boðið upp á sumarlestur í Háaleitisskóla frá 10. Júní til og með 14. ágúst, á þriðjudögum kl. 9:00 -11:00 og á fimmtudögum kl. 11:00 – 13:00. Nemendum stendur til boða að koma á bókasafnið og lesa fyrir kennara og fá nýjar bækur. Það verður einn kennari til staðar í hvert skipti, en það eru fjórir kennarar sem skiptast á að vera á bókasafninu, Dórý, Dísa, Elísa og María Árelía. Á bókasafninu verður kennari til staðar með lestarlistana og stuðningsefni sem hægt er að grípa í. Markmiðið með þessu verkefni er að viðhalda þeirri lestrarfærni sem nemendur hafa þegar náð og reyna koma í veg fyrir að hún dali eins og oft gerist í sumarfríinu. Nemendur eiga að nota innganginn við bókasafnið, ekki aðalinnganginn. Þetta er tilraunaverkefni sem fékk styrk frá Nýsköpunar- og þróunarsjóði Reykjanesbæjar og gaman verður að sjá hvernig útkoman verður. Við hvetjum foreldra og nemendur að nýta sér þetta.

 

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær