13. febrúar 2026

Viðburðarík næsta vika

Viðburðarík næsta vika

Framundan eru nokkrir viðburðir sem gott er að hafa í huga:

Mánudagur 16. febrúar (Bolludagur): Þennan dag mega nemendur gjarnan taka með sér bollur í skólann.

Þriðjudagur 17. febrúar (Sprengidagur): hefðbundinn skóladagur, boðið er upp á saltkjöt og baunir í hádeginu.

Miðvikudagur 18. febrúar (Öskudagur): Vinsamlegast athugið að öskudagur er skertur nemendadagur og lýkur kennslu klukkan 11:15. Nemendur mega koma í grímubúningum og með sparinesti (vopn eru ekki leyfð). Frístund byrjar kl. 11:15 fyrir þá nemendur sem eru skráðir þar.  

Fimmtudagur 19. febrúar (Starfsdagur): Þennan dag er starfsdagur kennara og því hvorki skóli né frístund.

Föstudagur 20. febrúar (Vetrarfrí): Skólinn verður lokaður vegna vetrarfrís.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær