11. febrúar 2026

Vika 6

Vika 6

Vika 6 er sjötta vika hvers árs. Í þeirri viku er starfsfólk grunnskóla, leikskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta aldursviðeigandi kynfræðslu. Vika6 fór fram dagana 2.–6. febrúar 2026 í Háaleitisskóla. Þemað að þessu sinni var öryggi og ofbeldi.

Eitt verkefni var gegnum gangandi alla vikuna í öllum grunnsólum í Reykjanesbæ á unglingastigi. Nemendur máttu gera veggspjald, hlaðvarp, myndband, glærur eða annað sýnilegt sem mætti tengja við þema vikunnar. Dómnefnd valdi síðan besta myndbandið og verkefnið, sem yrði síðan sýnt í öllum skólum á föstudeginum.

Verkefni frá Háaleitisskóla var valið sem besta verkefnið, en það var veggspjald um Samþykki og Mörk, og var hannað af þeim Elísu, Helenu og Rakeli í 9.ÁÓ

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær