Gulur dagur 10. september
Við hvetjum nemendur og starfsfólk til að klæðast gulu til að sýna stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir 10. september.
Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.
Allir geta tekið þátt t.d. með því að klæðast gulu, skreyta með gulu og með því að skapa hlýja, gula og glaða stemmingu. Tökum gular myndir og deilum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember