Eldvarnarfræðsla í 3. bekk
Á þriðjudaginn komu starfsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja og voru með eldvarnarfræðslu fyrir nemendur í 3. bekk. Er þessi fræðsla hluti af árlegu eldvarnarátaki Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Sýnd var ný teiknimynd sem fjallar um baráttu slökkviálfanna Loga og Glóðar við Brennu-Varg. Myndin byggir á fræðsluefni sem notað hefur verið í eldvarnarátakinu undanfarin ár. Einnig fengu börnin afhenda handbók um eldvarnir heimilisins og fleira fræðsluefni. Farið er yfir helstu atriði eldvarna á heimilinu með börnunum, svo sem um nauðsyn þess að hafa reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi á heimilinu. Höfðu nemendur virkilega gaman af þessari heimsókn en þau fengu svo í lok fræðslunnar að fara út að skoða slökkviliðsbíl og sprauta vatni úr brunaslöngunni.